Gangverk hversdagsleikans hefst í vikunni fyrir margar fjölskyldur Í Reykjavík eftir sumarfrí. Háskólarnir byrja í dag, framhaldsskólarnir seinna í vikunni, grunnskólinn í lok hennar, skipulagt íþrótta og tómstundastarf víða farið af stað og starfsfólk mætt til vinnu. Vegagerðin birti frétt nýlega þar sem fjallað var um aukningu dagsumferðar á höfuðborgarsvæðinu milli ára í júlímánuði, sem var 2,1% eða um 3.800 ökutæki. Dagsumferðin hefur aukist mismikið það sem af er ári en mest í janúar en þá var aukningin 7,2% eða um 11.800 ökutæki. Þannig keyrðu tæplega 12 þúsund fleiri bílar um höfuðborgarsvæðið á dag í janúar í ár en á sama tíma í fyrra. Við viljum draga úr umferð, minnka ferðatímann og bæta loftgæðin. Þar koma fjölbreyttir ferðamátar sterkir inn eins og strætó og hjólreiðar.
