Umræða og atkvæðagreiðsla um húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar var í borgarstjórn Reykjavíkur í vikunni. Sjálfstæðisflokkurinn í borginni kaus gegn henni. Þau eru á móti húsnæðisuppbyggingu, á móti borgarlínu, á móti þéttingu byggðar og vilja ekki að samfélagið greiði niður húsnæði fyrir þau sem þess þurfa.
Í umræðu um húsnæðismál er oft talað um lausn vandans við háu húsnæðisverði og háu lóðaverði sé að byggja verði á ódýrum lóðum á óbrotnu landi í jaðri byggðar. Það sé mun hagstæðara, mun ódýrara en að byggja inn á við, byggja þétt. Hátt hefur heyrst í uppbyggingaraðilum, verktökum og jafnvel verkalýðshreyfingunni þar sem þau kalla eftir fleiri ódýrum lóðum, það sé lóðaskortur og því þurfi að stækka vaxtar mörkin sem rúma nú þegar 24 þúsund íbúðir innan Reykjavíkur og 58 þúsund íbúðir innan alls höfuðborgarsvæðisins. Þetta er sagt nauðsynlegt til að hægt sé að byggja á lægra verði. Lægra verði fyrir hvern? Hver borgar fyrir ódýrar lóðir?
Umræða síðustu mánuði um húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík hefur verið áhugaverð, áhlaupið á Reykjavíkurborg er markvisst, þaulhugsað – Sjálfstæðisflokkurinn bæði á þingi og sveit, Samtök Iðnaðarins, Hádegismóar, Viðskiptablaðið, sumir uppbyggingaraðilar og núna síðast í gær fulltrúi verkalýðshreyfingarinnar og bæjarstjóri næst fjölmennasta sveitafélags landsins, sem hefur á síðustu árum farið óvarlega með takmarkað byggingaland sitt. Skilaboðin eru þau sömu á öllum stöðum, þétting byggðar sé komin í þrot, tími ofurþéttingar sé liðin, engar lóðir séu til staðar í Reykjavík, lóðaskortur hamli uppbyggingu, lóðaskortur sé ástæða hás íbúðaverðs, lóðaskortur sé orsök húsnæðiskrísunnar því verði að brjóta nýtt land í jaðri byggðar að byggja, það land er ódýrt, ódýrara sé að byggja á ódýru landi, þá lækkar húsnæðisverð, þá lækkar lóðaverð – Vaxtamörkin verði að endurskoða strax.
Breytt samfélagsgerð kallar á nýja hugsun í íbúðauppbyggingu og þjónustu fyrir þau sem bera gæfu til að eldast. Samkvæmt mannfjöldaspám Hagstofu Íslands stendur þjóðin frammi fyrir sömu áskorunum og nágrannaþjóðir okkar. Hlutfall eldra fólks mun aukast jafnt og þétt næstu áratugina. Þannig mun mín kynslóð, næsta kynslóðin á undan mér og þær sem á eftir koma, lifa lengur, vera fjölmennari og gera meiri kröfur til samfélagsins hvað varðar þjónustu, lífsgæði og heilbrigði. Brýn þörf er fyrir öruggt húsnæði á hagkvæmu verði í borgarsamfélögum samtímans og Reykjavík er engin undantekning frá öðrum borgum. Á sama tíma þarf að gæta að því að nýta landið vel.
Tryggt þak yfir höfuðið er undirstaða daglegs lífs, það veitir öryggi og skjól sem öllum er lífsnauðsynlegt. Núna í vetrarbyrjun voru 2.853 íbúðir í byggingu í Reykjavík og fjölgar um rúmlega 12% milli ára, 2.884 íbúðir eru í samþykktar í deiliskipulagi og 2565 á byggingarhæfum lóðum.
Reykjavíkurborg stendur á tímamótum. Síðasta áratug og þann næsta verða mestu breytingar á borginni í hálfa öld. Framtíðarborgin farin að taka á sig mynd á sínu mesta uppbyggingarskeiði. Það er viðeigandi mitt í HönnunarMars að hafa hugrekki til að kasta fram djörfum hugmyndum um nýja nálgun í búsetuformi. Kynslóðakjarna þar sem kynslóðir búa saman, nýta sömu lífsgæðin sem hvort tveggja ýtir undir fjölbreytt mannlíf í þéttri og grænni borg. Borgin okkar er að breytast, ný hverfi verða til, byggðin tekur á sig nýja mynd og tækifæri til að móta borgarsamfélag framtíðar er núna. Aðalskipulag Reykjavíkur, leiðarljósið okkar, tekur utan um byggðina, faðmar og fangar hlýlega inn í mótandi borgarsamfélag.
Leit