Í amstri hversdagsins hugsa fæstir um framtíðina. Látum duga að dvelja í núinu, mæta til skóla eða vinnu, koma ungum á legg, halda heimili. Þannig týnist tíminn. Við verðum ekki var við að eldast, ekki fyrr en horft er á börnin í kringum okkur eflast, dafna, vaxa úr grasi eða þegar rekist er á gamlan vin eftir 30 ár. Eins, samt ekki, grásprengdir lokkar, lesgleraugu og broshrukkur - pínu eins og þroskaður ostur.
