Flestir foreldrar í Reykjavík þekkja frístundarvefinn, vefur sem hefur geymt upplýsingar um námskeið til íþrótta og tómstunda í Reykjavík í mörg ár. Margir foreldrar kannast við að sitja framan við skjáinn til að skrá ungana sína í spennandi sumarnámskeið, valið hverfi, tímabil og skannað fjölbreytt framboð á námskeiðum og afþreyingu. Vefurinn var komin til ára sinna og brýnt að uppfæra hann og aðlaga að nýjum stöðlum. Sá annmarki hefur verið á vefnum að hann hefur einungis haldið utan um þjónustuframboð fyrir börn og ungmenni en ekki önnur aldursskeið eins og eldra fólk. Úr því þurfti að bæta.
