Skólinn er einn af mikilvægum þáttum í lífi barna, viss hornsteinn og stökkpallur til valdeflingar náms og staður þar sem formlegt nám er útfært. Hann er líka staður sem á tryggja jöfn tækifæri, vera skjól og veita öryggi. Við jafnaðarfólk vitum að börn búa við fjölbreyttar aðstæður, sum eiga foreldra sem stunda reglulega hreyfingu á meðan önnur ekki, þess vegna erum við með skólaíþróttir og skólasund bundið í aðalnámskrá, einmitt til að tryggja börn kynnist hreyfingu, fjölbreyttum íþróttum og læri að synda. Sama má segja um hjólreiðar. Sum börn eiga hjól, önnur ekki þar sem sumir foreldrar hjóla sér til heilsubótar, aðrir hjóla sér skemmtunar eða stunda samgönguhjólreiðar. Þau börn búa vel að eiga fyrirmyndir, fá hvatningu og stuðning til að hjóla. Hvernig getum við tryggt að öll börn fái að kynnast hjóli, læra að hjóla, hugsa um hjólið sitt og kynnist kostum þess að kunna hjóla þannig að þegar þau eldast verði til heilbrigð hjólamenning sem þau skilja til næstu kynslóða?
Þörf einstaklingsins til að tilheyra er mikil; tilheyra fjölskyldu, tilheyra vinahópi, tilheyra skólanum sínum, tilheyra íþróttafélagi - tilheyra samfélagi, öðlast um leið tilgang og mynda félagsleg tengsl.
Síðustu sjö árin hefur mikil og metnaðarfull umbótavinna verið unnin af hálfu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem og fagaðila innan skólasamfélagsins í borginni með dyggum pólitískum stuðningi meirihlutans í Reykjavík. Þessi mikla og góða vinna hefur hvorki farið hátt né verið slegið upp í fyrirsögnum fjölmiðla en um er að ræða rúmlega 4 milljarða króna fjárfestingu í bættu starfsumhverfi, bættu faglegu skipulagi innan leikskólans og bættri starfsaðstöðu. Það er fyrir utan viðhald og endurbætur mannvirkja, nýjar Ævintýraborgir og launahækkanir sem komið hafa fram í kjarasamningum. Það er miður hvað umræðan hefur takmarkast við afleiðingar brýnna viðhaldsverkefna, viðhalds vegna rakavandamála og þeirri erfiðu og viðkvæmu stöðu að geta ekki brúað bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla eins hratt og áætlanir gerðu ráð fyrir eins og skýr vilji stendur til.
